Rave on Kidz… og koma svo bara…
Blog
-

Hljómalind segir Mu Mu aftur
Opinberanir Kidda Kanínu. Fyrsta apríl 2026.
Á dögunum var ég tekinn niður á Facebook og Messenger, 180 daga bann. Hvarf þar félgsheimilið mitt og heiti potturinn minn, samskiptaleiðir og rödd. En það má ekki deyja ráðalaus svo hér er ég enn og aftur og vek gamla Kú (Mu Mu) af værum blundi. Hljómalind.is fer aftur á stjá og verður vettvangur minn og draumaverksmiðja okkar allra..
Ég er að fara að byggja og hyggst gera það nánast í beinni eða þannig. Huliðnshjálmur er nafn húsinns sem rísa mun hér að Huilduhliði í Grímsnes og Grafningshreppi í sumar og það næsta líka með útisvæðinu, popparapottunum, Kúreka-norðurljósa-gufubaði, eldstæði og Blóma og Sætabrekku…
Ég mun þurfa hjálp og stuðning við að reisa þetta fyrsta sérhannaða SveitaRaveHús í öllum Geiminum og hafa leiðir að fólki og ykkur vinum og velunnurum mínum. „Maður gerir ekki rassgat einn“., Húsið verður að mestu byggt úr draumum og ímyndunarafli, gjafaefni og afgöngum en allt löglega gert og vandað til verka á öllum sviðum. Gerum bara okkar besta. Líklega kominn með rúmlega 80% af því efni ég þarf í pakkann. Leifi og allt slíkt loks klárt eftir þrautagöngu mikla í 2 ár með arkitekt sem var svo bara ómerkilegur svikari, lygari og bæði tíma og fjármuna þjófur Meira um þann djöfladans síðar.
Huliðnshjálmur verður Bautarsteinn um son minn Oliver Kristinsson sem lést núna 26. janúar síðastliðin, blessuð sé mining hans, og minnisvarði um Hljómalind og verk mín í fortíð sem og í komandi framtíð og hina 2 strákana mína þá Sverri og Tuma og aðra helstu áhrifavalda á líf mitt og afleiður. Allt smá listrænt og dálítið smart er ég að vona. Er sjálfur svo glaður með hönnun mína og útfærslur og væntingar harla góðar.
Huliðnshjálmur verður eins konar félagsmiðstöð og vettvangur bæði fyrir mig og aðra. Hljómalind.is verður þar öflugt vopn og rödd, rödd alþýðunnar, skjöldur og sverð

Á Hljómalind.is mun ég geta látið rödd mína heyrast aftur með bloggi ofl., þarna verður sögunni gerð skil og bara sem mestu og leitað eftir bæði efni, heimildum, safngripum eins og plakötum, blaða og fjölmiðlaumfjöllunum og slíku efni komið haganlega fyrir, UXA 95, Extrablaðinu, Lágmenningarborginni Reykjavík, helstu tónleikum og öðrum ómerkilegum sem merkilegum uppákomum gerð skil osfrv, Hugmyndin er að vera með Útvarp Hljómalind og podcast eða eitthvað slíkt, nostalgíunni verður sinnt sem og að reyna að verða brautarstöð nýgræðings og uppvaxtar, skapa möguleika og tengingar og aðstoða aðra við að láta sína drauma rætast líka. Mögulega fer einhver minjagripa framleiðsla fram og útgáfur, bæði á tónlist, bókum og öðru menningarefni, ma. íslenskum Nútíma Útlagasögum.
Sérstaklega verður hugað að vexti og viðgangi SveitaRavesinns í bæði orði og æði. Gata þess greidd og vaxtarbroddar studdir.
Verum klíka líka…

Hljómalind.is verður eins konar fjölmiðill, vettvangur líka fyrir aðra með bloggi, greinum og vangaveltum sem tengjast menningu og þemum okkar. Mann og menningar bætandi pæl og plott í þágu lýðræðis og frelsis til máls og æðis innan skynseminar og það allt.
Það er fullt af pæli í pípunum en við látum þetta vera gott að sinni. Annað bara fæðist og kemur með kalda… krananum þráðbeint úr okkar dýpstu frum lindum… Það mun ekki allt gerast í einum grænum, meira svona sirka þremur grænum. Byrjum á bloggi og kynningu á pælunum. Þið bara fylgist með frá byrjun og verið tengd ef áhugi er á að vaða deigluna með okkur, vera memm og koma út að leika.
.
Rave on..
Kiddi Kanína 8881315
